Vefir, pöntunarkerfi og sjálfvirkni fyrir lítil íslensk fyrirtæki. Tveir menn, engir milliliðir — þú talar beint við þá sem smíða.
Fast verð áður en við byrjum. Allt á íslensku og allt virkar í síma.
Hraður vefur á íslensku sem virkar í síma og þú getur uppfært sjálf/ur.
Pantanir, matseðlar og reikningar á einum stað — eins og hjá Matstöðinni.
SMS, áminningar og svör sem sjá um sig sjálf. Manneskja samþykkir alltaf áður en eitthvað fer til viðskiptavinar.
Bættu við vefinn eða kerfið sem þú átt nú þegar.
Spjallari sem þekkir fyrirtækið þitt: svarar spurningum og tekur við pöntunum allan sólarhringinn, á íslensku og ensku. Þjálfaður á þínum gögnum.
Leit sem skilur íslensku, þolir stafsetningarvillur og samheiti og finnur rétta vöru strax. Virkar líka á núverandi vef (WordPress, Shopify, Wix).
Einn skjár þar sem þú sérð hvað viðskiptavinir leita að og spyrja um, stöðu pantana og efni síðunnar, með aðgangsstýringu fyrir teymið.
Lifandi gögn á vefnum, t.d. verð, birgðir, opnunartímar eða gengi, sem uppfærast sjálfkrafa úr kerfunum þínum.
Misst símtal, tómur tími, gleymt tilboð. Þrjár lausnir sem grípa viðskiptin sem annars fara framhjá.
Tapið: síminn hringir á meðan allir eru undir bíl.
QR-röð á staðnum, sjálfvirkt SMS þegar símtali er ekki svarað og „þú ert næstur“ þegar kemur að bílnum. Fyrir dekkja- og bílaverkstæði.
Tapið: ósvöruð fyrirspurn og tómur tími í dagbókinni.
Fyrirspurn fær svar strax, réttu upplýsingunum er safnað og tíminn bókaður. Áminningar fækka forföllum og laus tími fer sjálfkrafa á biðlista. Fyrir heilsustofur og ferðaþjónustu.
Tapið: tilboð sem enginn fylgdi eftir.
Frá fyrirspurn að samþykktu tilboði, með eftirfylgni á degi 2, 5 og 10. Fyrir þakvinnu, verktaka, réttingar og aðra tilboðsvinnu.
Þú sérð um verkið. JO! heldur utan um söluna.
Fyrir þakvinnu, verktaka, réttingar og aðra þjónustu þar sem fyrirspurn verður að tilboði.
Minna að muna. Betri eftirfylgni. Meiri tími í verkin.
Kynningarblað (PDF) ↗— hugmynd að lausn · sýnigögn, engar tengingar við önnur kerfi
Minna símaálag. Betra flæði á verkstæðinu.
Fyrir dekkjaverkstæði og bílaverkstæði þar sem nóg er að gera. JO! RÖÐ heldur utan um biðröðina, svarar ósvaruðum símtölum með SMS og lætur viðskiptavininn vita þegar kemur að honum.
Betri yfirsýn fyrir ykkur. Skýrari bið fyrir viðskiptavininn.
Byggt á Næstur · sjá kerfið ↓Kynningarblað (PDF) ↗— hugmynd að lausn · sýnigögn, engar tengingar við önnur kerfi
Taktu vel á móti. Líka þegar þú ert upptekinn.
Fyrir heilsustofur, ferðaþjónustu og fyrirtæki sem taka við bókunum. JO! MÓTTAKA svarar fyrirspurnum strax, safnar nauðsynlegum upplýsingum og hjálpar viðskiptavininum að bóka.
Fljótari svör. Minna utanumhald. Betri nýting á lausum tímum.
Kynningarblað (PDF) ↗— hugmynd að lausn · sýnigögn, engar tengingar við önnur kerfi
Viðskiptavinir skrá sig í röðina og bíða þar sem þeim hentar. Næstur sendir SMS þegar röðin nálgast.



Pöntunarkerfi fyrir eldhús sem senda hádegismat í fyrirtæki. Smíðað fyrir Matstöðina.
— sýnidæmi án lykilorðs
Þú talar beint við þá sem hanna og smíða. Við tökum fá verk í einu og klárum þau.

Ég hef starfað við auglýsingar og hönnun í mörg ár og tek þá reynslu með mér inn í hvert verkefni hjá jojojo! Mér finnst skemmtilegast að finna góða hugmynd og vinna hana alla leið — í skýran texta, sterkt útlit og útfærslu sem virkar. Ég legg áherslu á persónulegt samstarf, vandaða vinnu og hönnun sem hefur tilgang.

Ég hef yfir 25 ára reynslu af því að koma hugmyndum í framkvæmd, úr kvikmyndum og sjónvarpi yfir í vöruþróun og nýja tækni. Ég hef stofnað fyrirtæki, stýrt fjölbreyttum verkefnum og þróað lausnir sem nýta gervigreind. Mér finnst skemmtilegast að tengja skapandi hugsun við skýra áætlun — finna tækifærin, leysa flækjurnar og koma hlutunum af stað.